Bjart húsnæði, ný tæki og gott aðgengi

Seigla sjúkraþjálfun er staðsett í rúmgóðu, nýlega endurnýjuðu húsnæði að Reykjavíkurvegi 74 í Hafnarfirði. Stofan er á jarðhæð með mjög góðu aðgengi beint inn af bílaplani með nægum bílastæðum. Sérmerkt bílastæði fyrir fatlaða eru beint fyrir utan dyrnar. Innandyra er hátt til lofts og vítt til veggja og aðgengi fyrir hjólastóla mjög gott. Aðstaðan samanstendur af stórum sal með breiðum meðferðarbekkjum og lyftara, rúmgóðum, vel búnum tækjasal auk herbergis sem er sérútbúið fyrir þjálfun barna en getur einnig nýst öðrum ef þörf er á auknu næði.